Ýmindun eða raunveruleiki? [vinsamlegast leiðréttið stafs.villur.]
Eins og margir (sem þekkja mig) vita, þá hef ég afskaplega mikinn áhuga á ljósmyndun. Í dag ákvað ég að skella mér út til að taka myndir af náttúrunni fyrir verðandi fósturfjölskylduna mína á Ítalíu. Vegna þess að það er gífurlega vinsætl að gefa myndamöppu. allavega. þá fór ég þarna rétthjá paint ball, eða á milli paint ball og álversins, en þar eru mörg gömul hús út um allt. ýmis brotin eða rifin.
Ég ákvað að byrja á einu húsi sem var að hruni komið, var dálítið smeik þarna, frekar draugalegt, eða kannski er ég bara búin að horfa á of margar draugamyndir og ýmindunin í hámarki, hver veit. Það brakaði vel í húsinu, sennilega útaf vindinum, en samt var ekki svo hvasst. Ég tók nokkrar myndir af húsinu og inni í því þó svo að ég hafi verið svolítið smeik, þá reif ég hörkuna upp í mér og lauk þessu af með stæl.
Síðan kem ég heim og set myndirnar inn í tölvuna. Myndirnar ágætar og ég bara eitthvað að spjalla við Írisi á msn þegar allt í einu. púff. þá rek ég augun í konu á einni myndinni sem er inni í húsinu, eða hvort hún sé hinumegin við húsið. ég veit það ekki.
Þið sjáið myndina kannski ekki eins vel og ég en þetta er hún og ef þið kíkið inn um gluggann og út um hinn þá sjáið þið móta fyrir manneskju. Ef ég er að sjá rétt þá var í rauninni draugur þarna, og þá hefur þessi hræðsla í mér ekki verið nein ýmindun. hvað veit ég. Ætli þetta sé unga konan sem lést í þessu húsi fyrir mörgum árum síðan. hvað vitið þið. Enginn veit.
Þegar ég fór síðan að pæla meira í þessu. fór að hugsa. þetta er bara spíta sem stendur svona út úr glugganum, þá áttaði ég mig allt í einu á einu, að ég hafði tekið mynd af húsinu líka frá hinni hliðinni og þar er engin spíta. bara hreinn og beinn glugginn.
Þarna hafið þið það. hugsið ykkur síðan vel um.
Var þetta bara ýmindun í mér eða var einhver þarna með mér ?
